27.5.2010 | 23:50
Eitt besta lagið ...
Afstöðu þeirra Svía skil ég vel. Mér þótti framlag þeirra vera það besta í kvöld og reyndar yfir það heila; lagið höfðaði til mín þó svo að umgjörðin hefði mátt vera kraftmeiri (eins og þegar lagið sigraði á heimaslóð). Keppnin í kvöld var til muna betri en á þriðjudagskvöldið, þegar okkar framlag komst í gegnum nálarauga Evrópubúa. Sem betur fer vorum við ekki að keppa í kvöld.
Sumir segja framlag Dana, með sitt stolna stef (Sting; Every Breath You Take), vera sigurstranglegt en eitt er víst að það fær ekki mitt atkvæði. Þar koma önnur lög frekar til greina í mínum huga. Tyrkir koma sterkir inn, einnig Ísrael, Rúmenía, Írland og fleiri. En mikið mun vanta í úrslitakeppnina er hin unga Anna Bergendahl verður víðs fjarri.
Svíum brugðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ps. best að hlusta á Önnu á Youtube ...
Ólafur Als, 27.5.2010 kl. 23:55
Ég var í Globen þegar hún vann keppnina í Stokkhólmi. Mér finnst þetta eitt besta lag og sviðsframkoma sem ég hef séð lengi...sorglegt að fólk hafi ekki meiri smekk fyrir þessum týpum af músik...
Óskar Arnórsson, 27.5.2010 kl. 23:58
Ætla að gefa franska laginu sérstakan gaum á laugardagskvöldið ...
Ólafur Als, 28.5.2010 kl. 14:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.