2.4.2007 | 09:42
Haganlegar leiðbeiningar fyrir konur
Í síðustu viku birti ég lista með smá uppörvun fyrir konurnar. Ekkert alvarlegt, enda gott að kitla hláturtaugarnar öðru hvoru. Reyndar þykist ég viss um að listinn hafi skemmt báðum kynjum.
Ég rakst á þennan sem er fullur af "skemmtilegum" fordómum í garð æðra kynsins, svo maður haldi því nú til haga. Hann er þýddur úr ensku og ber þess merki. Um er að ræða leiðbeininar til kvenna sem ætla að taka út peninga í "drive-in" hraðbanka:
1. Keyra upp að hraðbanka
2. Bakka til þess að snúa rétt að hraðbanka
3. Handbremsuna á og rúðuna niður
4. Finna handtösku, tæma allt innihald hennar í farþegasætið og ná í kortið
5. Lækka í útvarpinu
6. Reyna að setja kortið í hraðbankann
7. Reyna að setja kortið í hraðbankann
8. Opna hurðina til þess að auðvelda aðgang að hraðbankanum sem er of langt frá
9. Setja inn kortið
10. Setja það aftur inn, nú með réttri hlið upp
11. Róta í innihaldi handtöskunnar eftir minnisbókinni með PIN-númerinu
12. Slá inn PIN-númeri
13. Endurkalla aðgerð og slá inn rétt PIN-númer
14. Slá inn upphæð
15. Athuga andlitsmálninguna í baksýnisspegli
16. Taka seðlana og kvittun
17. Róta enn á ný í leit að peningaveski og setja seðlana þar í
18. Setja kvittun á annan stað í peningaveski
19. Athuga andlitsmálningu í baksýnisspegli á ný
20. Keyra áfram einn metra
21. Bakka að hraðbanka og sækja kortið
22. Róta enn á ný í innihaldi handtöskunnar, finna kortaveskið og setja kortið í
23. Svara með fingurtákni að óþolinmóðum karlmönnum sem myndað hafa röð að baki þér
24. Endurræsa vélina, sem drap á sér í öllum látunum
25. Keyra 3 til 4 kílómetra
26. Taka bílinn úr handbremsu
Brosvipra?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.