22.1.2008 | 18:06
Hvíta eldingin að bræða Króata ...
Markvörður Dana, Casper Hvidt, hefur varið eins og berserkur í fyrri hálfleik, sem hefur, ásamt lipurri sókn, fært Dönum 6 marka forystu í hálfleik. Hvidt hefur varið 12 skot af 21 og reyndar fleiri, þar sem Danir hafa ekki náð boltanum, og það úr fjölmörgum dauðafærum Króata. Snemma leiks var Krogh, skytta Dana á vinstri vængnum, rekinn útaf með rautt kort, fyrir gróft brot. Spellerberg hefur tekið stöðu hans og hefur verið mjög ógnandi, ásamt með upprennandi stjörnunni, Lindberg, í hægra horninu.
Danska liðið er allt að spila vel en Króatar gefast ekki upp. Þeir öskra hver á annan og greinilegt að þeir ætla ekki að gefa neitt eftir. Metlicic hefur tvisvar fengið 2 mín. útvísvun, sem gæti haft áhrif á leik Króata er á líður leik. Balic er sterkur að vanda, en sögur herma að hann láti fátt annað inn fyrir sínar varir en kaffi og sígarettureyk - helst engan mat. Forvitnilegur seinni hálfleikur framundan og Danir mega ekki við slæmum kafla, líkt og á móti Rússum í fyrradag þegar þeir fengu á sig átta mörk í röð og voru nærri því að kast unnum leik frá sér í lokin.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.