Stríðshetjan með útnefningu Repúblikana í vasanum

Nú má ljóst vera að McCain sé búinn að gulltryggja útnefningu Repúblikanaflokksins. Þessi 71 árs gamla stríðshetja hefur um sumt spilað á sömu nótum og Giuliani í öryggis- og varnarmálum og því kemur ekki á óvart að Giuliani veiti nú McCain stuðning sinn. Eins og komið hefur fram hefur kosningabarátta Giuliani vakið athygli fyrir mistök sín og verður í framtíðinni horft til hennar um það hvernig ekki eigi að bera sig að í þeim efnum. McCain hefur verið ferskur og vaxið ásmegin - og ef einhver skyldi finna að aldri McCains hefur hann gjarnan bent á að sá hinn sami skyldi taka málið upp við 95 ára gamla móður sína. Ekki verður séð hvernig Romney nái að hægja á McCain, nema eitthvað óvænt komi upp á yfirborðið allra næstu daga.


mbl.is Giuliani hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband