Alla vega annað sætið í deildinni, KR-ingar!

Mínir menn eiga eftir að spila við Tindastól á útivelli og Skallagrím á heimavelli áður en yfir lýkur. Í fyrri umferð vannst leikurinn á heimavelli gegn Tindastól með litlum mun og ljóst að okkar bíður erfitt verkefni á Sauðárkróki. Í síðasta leiknum tökum við á móti Skallagrími, sem við unnum örugglega á útivell fyrr í vetur og verður að telja okkur sigurstranglegri fyrir þá viðureign. Ef við höldum vel á spöðunum eigum við að tryggja okkur alla vega annað sætið í deildarkeppninni. Gangi ykkur vel, strákar, á næstunni.

Verr fór fyrir Hamas mönnum en þeir verða m.a. að víkja fyrir Breiðabliki og vil ég nota tækifærið og óska þeim til hamingju með færsluna upp í efstu deild.


mbl.is Auðveldur sigur KR og Hamar er fallinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband