Til hamingju KR-stúlkur

Það þurfti alla þessa leiki til að komast í úrslitin gegn Keflavík. Eftir sigra í tveimur fyrstu leikjunum fannst manni sem þetta væri í höfn en Grindavíkur-skvísur voru því ekki sammála. Þær sigruðu í næstu tveimur og knúðu fram oddaleik þar sem mínar stúlkur höfðu það. Keflavíkurhraðlestin virðist ósigrandi en KR-stúlkur hafa nú haft það af að sigra þær í vetur. Nú er að trúa á verkefnið og sigra fleiri leiki en andstæðingurinn og láta alla vita að KR er mætt til leiks í kvennaboltanum á ný.

Nú er að sjá hvort strákarnir nái ekki að feta í fótspor stúlknanna. Ef svo verður gætu sömu lið mæst í úrslitum í karlaboltanum eins og hjá stúlkunum. Það yrði saga til næsta bæjar.


mbl.is KR lagði Grindavík og leikur til úrslita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband