Tveir hörkuleikir

Danir nokkrir klaufar að missa 6 marka forystu niður í 4 mörk. Hvidt varði ótrúlega í upphafi leiks, var kominn með átta bolta eftir rúmar tólf mínútur. Eftir 10:3 forystu Dana eftir 15 mínútna leik hefur leikurinn jafnast og Pólverjar aðeins að ná sér á strik. Danir leika vel en verða að halda vel á spöðunum.

Leikur Frakka og Þjóðverja einkennist af góðri vörn af beggja hálfu. Frakkar komust í 8:4 eftir rúmar 20 mínútur og Þjóðverjar vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Franski markvörðurinn all svakalegur á milli stanganna og franska vörnin sterk fyrir framan. Svo kom veikur sóknarkafli hjá Frökkum og Þjóðverjar náðu að skora nokkur hraðaupphlaupsmörk og eru enn inni í leiknum þegar seinni hálfleikur er framundan.


mbl.is Danir í góðum málum gegn Pólverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband