Annar 50/50 leikur bíður okkar ...

Undir mikilli pressu í lokin héldu strákarnir haus. Ekki var það átakalaust að hala inn þennan sigur. Eftir sérlega sterkan fyrri hálfleik, þar sem sóknin gekk einstaklega vel, náðu Pólverjar að klóra í bakkann í síðari hálfleik. Þeir eru með frábærar skyttur fyrir utan, sem gerðu íslensku varnarmönnunum erfitt fyrir allan leikinn, og ef ekki hefði komið til góð markvarsla af okkar hálfu hefði þessi leikur spunnist allt öðruvísi. Íslensku varnarmennirnir réðu á löngum köflum ekki við klippingarnar í hreyfanlegri sókn Pólverja, ekki ósvipað og í leiknum á móti Egyptum. Hins vegar var sóknin að ganga upp, feilarnir fáir og aldrei þessu vant var markvarslan betri hjá okkur en andstæðingnum.

Það er nokkuð áhyggjuefni að vörnin nái ekki að þétta sig betur inn á miðjuna á móti jafn hreyfanlegri sókn og hjá Pólverjum. Jafnvel þegar við erum einum manni færri kemst skot í gegn - og æði oft alla leið í netmöskvana. Í vörninni vinnur Sverre eins og berserkur en einhverra hluta vegna er samvinna hans ekki eins góð og vera mætti við bakkinn sér á vinstri hönd. Eins og vera ber fer hann oft út á móti skyttum andstæðinganna en vill stundum skilja eftir línumanninn fyrir vikið. En vinnslan í manninum er ótrúleg, spurning hvort hinir nái einfaldlega að fylgja honum eftir.

Drengirnir höfðu trú á þessum sigri í dag og gáfust ekki upp þó svo að Pólverjarnir virtust vera komnir inn í leikinn í tví- eða þrígang í síðari hálfleik. Þeir eru með hugann við efnið og sjálfstraustið í lagi - ólíkt því sem við sáum í Evrópumótinu síðastliðinn vetur. Í næsta leik eru það Spánverjar eða S-Kóreumenn, annar 50/50 leikur eins og nú í morgun. Það væri e.t.v. tilhlíðilegt að fá Kóreubúana og hefna ófaranna frá því í undanriðlunum en þó tel ég Spánverjana líklegri mótherja.

Mér dettur ekki í hug að segja að það glytti í málm - slíkt tal kann ekki góðri lukku að stýra. Ég er nokkurn veginn á því að drengirnir hafi stefnt leynt og ljóst að því að komast í undanúrslitin - Ólafur og fleiri hafa gefið í skyn að takmarkið hafi legið hærra en að komast í 8 liða úrslit. Eins og liðið hefur spilað í þessari keppni er ekki við öðru að búast en að framundan sé hörku undanúrslitaleikur. Ef þeir trúa því að þeir komist lengra er það hægt - öðruvísi ekki.


mbl.is Ísland í undanúrslit á ÓL
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já ég er sko sammála

Jói Péturs (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband