Dollar var það heillin!

Eins og gefur að skilja fer sama upphæðin í að taka upp dollar. Það liggur tvennt fyrir hvað varðar upptöku erlends gjaldmiðils, evru eða dollars:
1. Dollaraupptaka yrði gerð í þökk Bandaríkjanna
2. Upptaka evru yrði gerð í óþökk Evrópusambandsins

Heiðar Már dreymir e.t.v. um inngöngu í Evrópusambandið - sem í mínum huga er e.k. martröð - en heldur þykir mér hann bjartsýnn ef hann telur það taka 3 aðlögunarár að ná Maastrich skilyrðunum. Þó svo að hann hefði rétt fyrir sér er komin upp tregða hjá ráðandi þjóðum í Evrópusambandinu að hleypa fleirum inn í evruna. Íslendingum stæði e.t.v. ekki til boða að taka upp evru á næstu tíu árum eða lengur.

Nú þarf að fara fram umræða um kosti og galla þess að taka upp annan gjaldmiðil og eru fjölmiðlarnir einir í stakk búnir til þess að hrinda þeirri umræðu af stað. Ætla þeir að sýna vanmátt sinn enn einu sinni? Kæmi mér ekki á óvart.


mbl.is Einhliða upptaka evru tæki 4 vikur og kostaði 80 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The Critic

Aðal vandamálið á íslandi er krónan, ofurvextirnir og verðbæturnar eru allt atriði sem tengjast krónunni, innganga í ESB er engin lausn. Lausnin á vandamálum Íslands er nýr gjaldmiðill eins og dollar 

The Critic, 5.12.2008 kl. 14:21

2 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Dollaravæðing með ISD og USD kostar 30,0 milljarða króna.

Sjá hér: http://altice.blog.is/blog/altice/entry/731502/

Loftur Altice Þorsteinsson, 7.12.2008 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband