29.3.2009 | 11:32
Farsæll leiðtogi ...
Eitt af því sem gerir Anders Fogh farsælan leiðtoga er hve vel honum hefur tekist að leiða sinn eigin flokk og ríkisstjórnina án þess að setja sjálfan sig í sviðsljósið. Hann komst sumpart til valda í skjóli vandræðagangs hjá sósíaldemókrötum á sínum tíma en núverandi formaður þess flokks, Helle Thorning-Schmidt, hefur ekki náð vopnum sínum á undanförnum árum. Hún bíður þess að Fogh misstígi sig því mjótt er á munum í danskri pólitík á milli borgaralega blokkarinnar og vinstri manna og hefur svo verið um langan aldur. Ef Fogh heldur til starfa fyrir NATO mun draumur vinsti manna væntanlega rætast um komast að kjötkötlunum í Danaveldi, því eftirmaður hans er ekki sá leiðtogi sem Danir horfa eftir og Íhaldsmenn eiga enn langt í land með að ná fyrri vinsældum.
Fogh hefur stýrt danskri velferð farsællega um árabil. Efnahagurinn danski hefur blómstrað, atvinnuleysi minna en hefur verið um langan aldur og atvinnuvegirnir hafa fengið að dafna, þrátt fyrir ofursköttun á nær flestum sviðum mannlífsins í þessu einu mesta velferðarríki heims. Og þrátt fyrir miklar opinberar tekjur frá atvinnulífinu og annars staðar frá hafa þær í raun ekki verið nægar, því velferðin krefst sífellt aukinna útgjalda. Má þar m.a. nefna skólabyggingar í niðurníðslu um alla Danmörk - sem ég kannast m.a. við af eigin raun. Það mun því reyna á hryggjarstykki efnahagsins í þrengingunum sem blasa við Dönum, líkt og öðrum um þessar mundir.
![]() |
Líf stjórnarinnar veltur á Fogh |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Faðir Fogh-Rasmussen var skólastjóri míns skóla í Danmörku og kynntist ég honum lítillega. Hafa skal í huga að eftirnöfnin eru tvö.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.3.2009 kl. 12:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.